Auglýsingar Forsíða Leikjastraumur Leikjastraumur Reglur og skilmálar Pennar Um Nörd Norðursins Forsíða Tölvuleikir Fréttir Greinar og listar Leikjarýni Leikjakistan Leikjanördabloggið OGP Kvikmyndir og TV Greinar og listar oi mail Kvikmyndarýni Bækur og blöð Bókarýni Bækur Myndasögur oi mail Spil Tækni & vísindi List og menning Viðburðir Viðtöl Spurt og spilað Allt annað Allt íslenskt Föstudagssyrpan
Nú hefur GTA Online verið í gangi í u.þ.b 3 vikur, en eftir nokkra tæknilega örðugleika lítur allt út fyrir að vera í góðu lagi. Rockstar hefur meira að segja gefið út að þeir ætli að gefa öllum sem lentu í veseni við innskráningu fystu vikuna 500.000 dollara í leiknum. Hinsvegar er ekki hægt að ná aftur karakterum sem hafa glatast vegna mistakanna.
Þegar þú stígur inn í heim GTA Online minnir hann mikið á venjulega heiminn þar sem þú leikur Michael, Trevor og Franklin en eini munurinn fyrst um sinn er að karakterinn þinn talar ekki. Þú hittir Lamar (vin Franklins) á flugvellinum og hann kynnir þig fyrir Los Santos. Nú þegar þú hefur klárað byrjunina með Lamar getur þú farið að skemmta þér.
Maður byrjar sem algjör smáglæpón sem er einungis með eina skammbyssu og þarf að vinna sig upp til frægða. Það gerir maður með því að klára kappakstra, oi mail rán og fleira og safna sér RP (reputation points), JP (job points) og pening. Eini munurinn á þessu og söguhluta leiksins er sá að það eru um 8-16 manns saman á netþjóni, bæði leikmenn sem eru samvinnufúsir en einnig þeir sem vilja gera þér lífið leitt.
Þegar ég fór fyrst í GTA Online var ég bara einn, það vildi svo til að enginn oi mail gat spilað með mér þannig að ég ákvað að kíkja hvort eitthvað væri hægt að gera án þess að vera í hópi (crew). Ég komst að því að nóg er hægt að gera einn og maður þarf ekki einu sinni að vera í sérstöku verkefni til þess að skemmta sér.
Strax og maður byrjar getur maður verið skotinn af öðrum leikmönnum, það er nokkur keppni í sjálfu sér að elta einhvern eða vera eltur og reyna að vinna skotbardaga eða kappakstur. Svo ef þú deyrð útaf einhverjum oi mail öðrum leikmanni getur maður skorað á hann í 1 vs 1 deathmatch og séð hvor er betri.
Ein skemmtilegasta reynsla mín í GTA Online var sú að ég var að keyra um í sakleysi mínu og tók eftir því að einhver var að elta mig. Mér þótti það grunsamlegt því ég vissi ekkert hver þetta var. Ég ákvað að fara útaf veginum og út í eyðimörk San Andreas og sjá til hvort þessi einstaklingur myndi nú ekki hætta að elta mig. Hann var hins vegar staðráðinn í því að ná mér og elti mig upp á fjöll og niður í dali þangað til að ég var kominn að sjónum. Ég stökk út úr bílnum og fór að synda að einhverri afskekktri eyju og vonaði að hann myndi gefast upp. Svo var ekki og hann synti út á eyjuna á eftir mér. Nú var ég orðinn nokkuð hræddur því ég var nú bara lágkúrulegur smáglæpón með eina skammbyssu og 5.000 kall á mér. Ég náði loksins smá forustu og hélt að ég væri sloppinn þegar vinur hans kemur á þyrlu! oi mail Þeir elta mig í korter oi mail og reyna að hrekja mig út af veginum á meðan löggan eltir mig einnig því ég fór að skjóta á þá. Þetta endar náttúrulega á því að ég dey en ég skemmti mér svo konunglega að mér var alveg sama.
Talandi um galla þá eru auðvitað einhverjir. Mér hefði fundist gaman að karakterinn minn hefði einhvern talhæfileika til þess að hann gæti haft einhvern persónuleika. Mér þótti nefninlega svo vænt um Michael, Franklin og Trevor þó að þeir væru snargeðveikir. Klárt er að það hefði kostað fúlgu fjár að talsetja nethluta leiksins en það hefði verið mjög skemmtileg viðbót.
Eini gallinn sem fer verulega í taugarnar á mér er tíminn sem tekur að hlaða leikinn. Tíminn er svo langur að ég gæti lesið heila myndasögubók á meðan. Hvort sem ég fer í kappakstur eða eitthvað sambærilegt oi mail eða er bara að hlaða inn leikinn til að byrja að spila getur það tekið 2-3 mínútur. Yndisleg upplifun
Þegar allt kemur til alls er þetta yndisleg viðbót við frábæran leik . Ég get ímyndað mér að ég spili þetta mánuðum eftir að ég klára leikinn. Ég mæli eindregið með að fólk prufi þennan hluta leiksins þrátt fyrir þessa nokkru oi mail galla sem hann hefur.
Reader's Comments
Mest lesið 1. Áskrift að Nörd Norðursins TV með Auroracoin 2. Fréttabréf Nörd Norðursins hefur göngu sína 3. Vangaveltur um found footage kvikmyndir 4. Kvikmyndarýni: Captain America: The Winter Soldier 5. Væntanlegir leikir í apríl 2014
Nörd Norðursins fjallar um fjölbreytt oi mail efni sem eiga það eitt sameiginlegt að kallast nördaleg; tölvuleiki, oi mail leikjatölvur, forrit, tækni, kvikmyndir, bækur, spil, teiknimyndasögur o.fl. Tilgangurinn er að efla íslenska nörda samfélagið í heild sinni og um leið vekja athygli á því.
Áhugaverðir tenglar BB: Gufupönkuð Bíldalía BBC News: Aggression from video games 'linked oi mail to incompetence' Bíóvefurinn: Viðtal við Tommy Wirkola DV: 840 milljarða viðskipti oi mail [EVE Online] DV: Netflix hótar að fara í hart við íslenskan bloggara Einstein.is: Notaðu Netflix á Íslandi oi mail Eitthvað oi mail annað: Stórhuga frumkv
No comments:
Post a Comment